Skilmálar Ancestry

Gildistökudagur: 15. ágúst 2022

 

Samantekt á breytingum

Þessari samantekt er ætlað að hjálpa þér að skilja betur nýjustu breytingarnar á skilmálum Ancestry og hvernig breytingarnar geta haft áhrif á þig. Við hvetjum þig til að skoða skilmálana í heild sinni sem og persónuverndaryfirlýsinguna.

Nýlegustu breytingarnar:

  • Í köflum 2 og 3 er tungumál varðandi aðgang og notkun af efni á Ancestry og efni þínu hjá Ancestry gert skýrara;
  • Í kafla 10 er uppfærsla á samningi varðandi úrlausnir deilumála sem ekki er hægt að klára utan dómsstóla, og
  • Bæta læsileika og einfalda skilmála

Velkomin á Ancestry®, heimsins stærsta fjölskyldusögu-gagnagrunn til að byggja fjölskyldutré til að finna nýja ættfeður og deila niðurstöðunum með fjölskyldunni. Vinsamlegast lestu eftirfarandi skilmála vandlega þar sem þeir stjórna notkun þinni af vörum og þjónustu sem Ancestry og hlutdeildarfélög þess bjóða upp á. Til að hjálpa þér að lesa þessa skilmála höfum við skipt þeim niður í eftirfarandi hluta:

 

1.   Kynning á þjónustunni
2.   Ancestry efni
3.   Efnið þitt
4.   Endurnýjun og uppsögn á þjónustu Ancestry
5.   Lokun eða tímabundin lokun reiknings þíns
6.   Engin ábyrgð eða tryggingar
7.   Takmörkuð ábyrgð Ancestry
8.   Þín trygging
9.   Þjónusta sem önnur fyrirtæki bjóða upp á
10.   Úrlausn ágreiningsmála, gerðardómur og undanþága frá hópmálsóknum
11.   Ýmislegt

1.  Kynning og þjónusta:

Með því að nota vefsíður, þjónustuleiðir og farsímaforrit Ancestry sem tengjast þessum skilmálum — Ancestry®, AncestryDNA®, Newspapers.com™, Find a Grave®, Fold3®, Archives® og WeRemember® — auk annarra tengdra vörumerkja („þjónustan"), samþykkir þú þessa skilmála („skilmálar“). Allir nýir eiginleikar sem fylgja þjónustuleiðunum í framtíðinni munu einnig falla undir þessa skilmála.

Vinsamlegast athugði að þessir skilmálar innihalda með tilvísun í aukalegar stefnur og yfirlýsingar, þ.m.t. samfélagsreglurvafrakökustefnu, höfundarréttarstefnuendurnýjunar og uppsagnarskilmála,  sem og persónuverndarstefnu  okkar, sem útskýrir hvernig við söfnum og notum persónuupplýsingar þínar. Við hvetjum þig til að lesa öll þessi skjöl vel til að skilja réttindi þín og ábyrgð þegar þú notar þessa þjónustu.

Aðrir skilmálar geta gilt þegar þú skráir þig í nýja þjónustu eða nýtir þér nýtt tilboð eða sérstök tilboð. Þér verða sýndir þessir skilmálar og þeir eru hluti af samningi okkar við þig ef þú notar þjónustuna eða tilboð frá okkur. Ef einhverjir viðbótarskilmálar stangast á við þessa skilmála munu viðkomandi viðbótarskilmálar gilda. 

Ef þú hefur einhverjar spurningar um þessa skilmála eða Þjónustuleiðir okkar, skaltu vinsamlegast Hafa samband.

1.1 Óvæntar niðurstöður. Þegar þú notar þjónustu okkar getur þú búist við því að uppgötva óvæntar niðurstöður um þig eða fjölskyldu þína í opinberum gögnum, efni Ancestry, DNA niðurstöðum eða öðru efni frá notendum. Þú samþykkir að slíkar niðurstöður geta haft sterk tilfinningaleg áhrif á þig og aðra sem þú deilir niðurstöðunum með. Þú samþykkir sérstaklega alla þá áhættu sem tengist notkun þinni á þjónustunni og að Ancestry skuli ekki bera ábyrgð á samfélagslegum, tilfinningalegum eða lagalegum afleiðingum af slíkum uppgötvunum.

1.2  Hæfi til að nota þjónustuna. Allir sem nota þjónustuna, hvort sem þeir eru óskráðir gestir, gjaldfrjálsir skráðir gestir, notendur í áskrift eða kaupendur eða virkjendur DNA setts, eru „notendur.“ Notendur geta þurft að stofna reikning til að nota þjónustuna. Notendur verða að gefa upp nákvæmar, heildstæðar og núgildandi upplýsingar þegar þeir skrá sig.

Þjónustan er ætluð fyrir notendur sem hafa náð sjálfræðisaldri þar sem boðið er upp á hana. Ef þú ert eldri en 13 en hefur ekki náð sjálfræðisaldri þar sem þú býrð geturðu nýtt þér þjónustuna (að undanskildum þjónustuleiðum sem krefjast DNA-prófs) með leyfi foreldris eða forráðamanns. Börnum yngri en 13 ára er óheimilað að búa til reikninga, þeim er hinsvegar heimilað að nota AncestryClassroom™ í skólanum eða með leyfi foreldra eða forráðamanna.

1.3 Notkun þjónustu. Í skiptum fyrir aðgang að þjónustunni samþykkir þú að:

  • Fylgja samfélagsreglum, vafrakökurstefnu, höfundarréttarstefnu, og endurnýjunar- og úrsagnarskilmálum  Ancestry;
  • Hlíta öllum gildandi lögum;
  • Bera ábyrgð á  notkun og virkni innan Þjónustuleiða sem fer fram í gegnum reikninginn þinn eða með innskráningarupplýsingunum þínum;
  • Hafa  samband við okkur ef þig grunar að reikningurinn þinn hafi verið notaður án þíns leyfis eða ef þú telur að notandanafni þínu og aðgangsorði hafi verið stolið;
  • Ekki endurselja Þjónustuleiðir eða endurselja, fjölfalda eða birta neitt efni eða upplýsingar sem finna má í gegnum okkar Þjónustuleiðir, nema eins og sérstaklega er lýst í þessum Skilmálum;
  • Ekki sniðganga, slökkva á eða trufla á annan hátt öryggistengda eiginleika þjónustunnar okkar; og
  • Hafa ekki aðgang að eða safna gögnum í miklu magni eða með sjálfvirkum hætti, eða reyna að fá aðgang að gögnum án leyfis. Þetta á meðal annars við yrki, skriðla, köngulær, gagnanámur eða skrapa.

1.4. Viðbótarskilmálar sem gilda um notkun þína á DNA-þjónustu. Tilgangur DNA-þjónustunnar er að veita erfða- og ættfræðilegar niðurstöður og skýrslur í tengslum við það til upplýsingar-, afþreyingar-, fræðslu- og rannsóknarnota. Eins og notað er í þessum skilmálum, vísar „DNA-þjónustan“ til notkunar á Ancestry DNA-prófunarsettinu, vinnslu og meðhöndlun á DNA-sýninu þínu, erfðaprófun á DNA-sýninu þínu og vef- eða farsímaforrit okkar sem veita þér niðurstöður og þjónustu í tengslum við þjóðerni og erfðafræði.

1.4.1 Hæfi til að nota DNA-þjónustuna. Þú verður að vera að minnsta kosti 18 ára til að kaupa eða virkja DNA-prófunarsett. Til að hjálpa okkur að tryggja heilleika og gæði gagnagrunnsins okkar og standa vörð um persónuupplýsingarnar þínar, verður hver fullorðinn einstaklingur sem leggur til munnvatnssýni fyrir DNA-próf að stofna sinn eigin reikning og virkja sitt eigið próf. Virkjunaraðilar DNA-prófa verða einnig að samþykkja með afdráttarlausum hætti vinnslu á viðkvæmum persónuupplýsingum. Foreldri eða forráðamaður getur virkjað DNA-próf, veitt okkur persónuupplýsingar og sent okkur munnvatnssýni til úrvinnslu frá eigin ólögráða barni með því að nota sinn reikning. Með því að virkja DNA-próf fyrir hönd eða leggja til einhverjar persónuupplýsingar ólögráða einstaklings þá ert þú að fullyrða að þú sért foreldri eða forráðamaður þessa ólögráða einstaklings. Þú samþykkir einnig að þú hafir rætt DNA-prófið við ólögráða einstaklinginn og ólögráða einstaklingurinn hefur samþykkt söfnun og úrvinnslu á munnvatni hans.

1.4.2 Notkun á DNA-þjónustunni. Að auki við skilyrði í kafla 1.3 hér að ofan þá samþykkir þú einnig að:

  • þú munir ekki endurselja DNA-prófunarsett;
  • að  munnvatnssýni sem þú gefur eru annað hvort þín eigin eða einstaklings undir þinni forsjá;
  • þú munir ekki senda okkur sýni í bága við útflutningsbann eða önnur lög;
  • með því að láta okkur í té munnvatnssýni öðlast þú ekki rétt á rannsóknum eða söluvörum sem þróaðar eru af okkur eða samstarfsaðilum okkar og færð engar greiðslur í tengslum við slíkar rannsóknir eða vöruþróun; og
  • þú munir ekki nota upplýsingarnar sem fengnar eru í gegnum DNA-þjónustu (þar á meðal öll DNA-gögn sem hlaðið hefur verið niður (skilgreind í persónuverndaryfirlýsingu))  í heild sinni, að hluta og/eða ásamt öðrum gagnagrunni, í hvers kyns læknisfræði-, greiningar- eða faðernisprófunartilgangi, í hvers kyns dómsmeðferð eða í hvers kyns tilgangi þar sem verið er að mismuna eða brjóta lög.

1.4.3 Framboð á DNA-þjónustu Ancestry. Þú samþykkir að til að auðvelda þér aðgang að þjónustunni kunnum við með beinum hætti eða í gegnum önnur fyrirtæki sem hjálpa okkur að veita DNA-þjónustuna að:

  • útvega öðrum fyrirtækjum sem hjálpa okkur að veita þjónustuna  munnvatnssýni þitt og DNA, svo sem rannsóknarstofum;
  • draga DNA úr munnvatni þínu;
  • framkvæma erfðafræðilegar prófanir í Bandaríkjunum (eða í öðrum löndum í framtíðinni) á DNA sem fengið er með því að nota prófunaraðferðir sem eru tiltækar núna eða í framtíðinni;
  • bera DNA-niðurstöður þínar saman við önnur DNA-gögn í Ancestry gagnagrunninum til að veita þér þjónustuna, þar á meðal að finna samsvörun við aðra í gagnagrunninum okkar sem þú deilir DNA með (þú ræður hvort þú vilt að DNA-samsvörunaraðilarnir þínir geti séð þig eða þú séð þá) ;
  • birta þér og öðrum sem þú hefur veitt heimild, niðurstöður prófana sem gerðar eru;
  • geyma DNA-niðurstöðurnar þínar;
  • geyma munnvatnið þitt og DNA í Bandaríkjunum eða farga munnvatni eða DNA-sýni sem eftir er eftir að unnið hefur verið úr sýninu; þegar það hefur verið sent til okkar er ekki hægt að skila munnvatns- og DNA-sýni þínu til þín (athugaðu samt að þú getur beðið okkur um að eyðileggja sýnið þitt, og í vissum tilvikum gætum við eytt lífsýnum til að viðhalda gæðum lífsýnasafnsins);
  • gera tilteknum samstarfsaðilum okkar á rannsóknarstofu kleift að nota hluta af virkum eða óvirkum munnvatnssýnum til að kvarða eða sannprófa tæki, búnað eða rannsóknarstofuaðferðir sem notaðar eru við að veita DNA-þjónustu; og
  • nota þínar erfðafræðilegar upplýsingar og aðrar persónuupplýsingar eins og lýst er í þessum skilmálum og persónuverndaryfirlýsingu.

1.4.4 Að hlaða niður DNA-gögnum þínum. Við verndum upplýsingarnar þínar eins og lýst er í persónuverndaryfirlýsingu okkar. Ef þú kýst að hlaða niður afriti af DNA-gögnum þínum er það afrit ekki varið af öryggisráðstöfunum okkar og þú ert ein(n) ábyrg(ur) fyrir því að geyma, tryggja og vernda þau gögn sem hlaðið er niður. Ancestry ber enga ábyrgð ef þú velur að deila sótt DNA-gögn þín með öðrum, hvort sem er viljandi eða óviljandi. DNA-gögnin þín eru eingöngu ætluð til persónulegra nota.

1.4.5 Athugasemd til notenda sem hafa fengið beinmergs- eða stofnfrumuígræðslu. Ef þú hefur fengið beinmergs- eða stofnfrumuígræðslu getur AncestryDNA-prófið þitt gefið óvæntar niðurstöður vegna þess að munnvatnið þitt gæti innihaldið frumur með þínu DNA ásamt því að innihalda frumur DNA-gjafans þíns. DNA fyrir prófið er dregið úr frumunum og ef um er að ræða samsett DNA getur það leitt til þess að prófið takist ekki eða að það skili niðurstöðum sem byggjast á DNA-gjafans þíns. Því mælum við ekki með því að þeir aðilar sem hafa fengið beinmergs- eða stofnfrumuígræðslu taki AncestryDNA prófið. Ef þú hefur þegar tekið prófið, skaltu hafa samband við okkur og fá frekari aðstoð.

2. Ancestry efni

Þjónustan okkar innihaldur myndir, myndbönd, skjöl, skrár, efnisskrár og annað efni sem Ancestry lætur þér í té („Ancestry efni“) sem fer eftir áskriftartegund þinni. Fyrir utan skrár WebSearch, sem stjórnast af skilmálum þriðju aðila sem hýsa skrárnar, telst allt Ancestry efni í eigu okkar eða í okkar höndum samkvæmt leyfi og má aðeins nota í samræmi við þessa skilmála, þar með talið það Ancestry efni sem ekki nýtur verndar á höfundarrétti („Efni sem ekki nýtur verndar á höfundarrétti”).

2.1 Höfundarréttur á Ancestry efni. Allir þættir þjónustunnar sem eru búnir til af okkur eða undir stjórn okkar, eða þar sem höfundarrétti hefur verið framselt til okkar eða þegar hann hefur verið leigður til okkar, eru háðir vernd á höfundarrétti í því landi sem við á og alþjóðlegum samþykktum. Fyrir nánari upplýsingar um höfundarréttarstefnu okkar skaltu smella hér. Þjónustan inniheldur vörumerki sem eru í eign okkar og vernduð samkvæmt svæðisbundnum lögum um vörumerki og samningum. Notkun á vörumerkjum og góðvilja sem til verður vegna þess mun verða okkur til góða. Þjónustan og vörur sem eru tengdar þjónustu okkar eru verndaðar með einkaleyfum í Bandaríkjunum og öðrum löndum út um allan heim. Fyrir frekari upplýsingar um einkaleyfi Ancestry, smelltu hér. Við og leyfishafar okkar munu halda eignarhaldi á öllum rétti á notkun á þjónustunni og hlutum hennar.

2.2 Notkun þín á Ancestry efni.

Þegar þú hefur aðgang að Ancesty efni, samþykkir þú að:

  •  nota Ancestry efni eingöngu í sambandi við persónulega notkun þína á þjónustuna eða sem hluta af fjölskyldutengdum ættfræðirannsóknum;
  •  hlaða aðeins niður Ancestry efni í sambandi við fjölskyldusögurannsóknir eða þar sem það er sérstaklega heimilað af Ancestry;
  • að fjarlægja ekki höfundarréttarmerki eða eignarhaldstilkynningar af Ancestry efni;
  • að nota ekki marktæka hluta efnis Ancestry fyrir utan þjónustuna eða á þann hátt sem er ekki í samræmi við áskrift þína og
  • hafa samband við okkur til að afla skriflegs leyfis okkar ef þú vilt nota meira en lítinn hluta af myndum og skjölum sem njóta ekki höfundarréttar

3. Efnið þitt

Ákveðin þjónusta getur heimilað þér að leggja til efni, þar á meðal en ekki takmarkað við ættartré, myndir, hljóð-/myndbandsupptökur, sögur, skráningarskýringar, athugasemdir, skilaboð og endurgjöf sem Ancestry er veitt um þjónustuna („efnið þitt“). Efni þitt sem inniheldur persónuupplýsingar mun vera meðhöndlað í samræmi við persónuverndaryfirlýsinguna.

3.1 Þú stjórnar efni þínu. Ancestry kveðst ekki hafa eignarhald á efni þínu, stjórna því hvernig þú velur að deila efni þínu á þjónustunni eða takmarka hvernig þú deilir efni þínu fyrir utan Ancestry-þjónustuna. Þú getur eytt efni þínu með að fylgja upplýsingum sem þér eru gefnar innan þjónustunnar eða með því að skrá þig inn á „minn reikning“ og eyða reikningnum þínum. Ef þú sendir inn endurgjöf, skráir skýringar eða kemur með ábendingar varðandi Ancestry eða þjónustuna okkar, samþykkir þú að slíkar upplýsingar munu ekki teljast trúnaðarmál né undir eignarhaldi og við megum nota endurgjöfina, skrá skýringar eða ábendingar í hvaða tilgangi sem er án skuldbindingar eða greiðslu til þín.

3.2 Notkun á efni þínu. Með því að senda inn efni þitt veitir þú Ancestry óeinkarétt, undirleyfishæft, um allan heim, þóknunarfrjálst leyfi til að hýsa, geyma, skrá, afrita, birta, dreifa, veita aðgang að, búa til afleidd verk af og nota á annan hátt efnið þitt til að veita, kynna eða bæta þjónusta, í samræmi við friðhelgi þína og deilingarstillingar. Þú getur endurkallað Ancestry-leyfi þitt með því að eyða efni þínu, nema að því leiti sem þú deildir efninu þínu með öðrum og að þeir hafi notað efni þitt. Þú samþykkir einnig að Ancestry eigi atriðaskrár sem innihalda efni þitt og geti notað þær eftir að efni þínu hefur verið eytt.

3.3 Þú berð ábyrgð á efni þínu. Þú berð ábyrgð á ákvörðunum um að búa til, hlaða upp, birta eða deila efni þínu. Með því að miðla eða hafa aðgang að efni þínu samþykkir þú að:

  • þú sért með öll nauðsynleg lagaleg réttindi til að hlaða upp eða birta efni þitt;
  •  efni þitt mun ekki innihalda upplýsingar um lifandi einstakling án samþykkis hans. Ef þú ert ekki sjálfráða þarft þú að fá samþykki frá foreldrum þínum eða forráðamönnum;
  • allt efni frá þér skal uppfylla samfélagsreglur;
  • ef þú deilir efni þínu opinberlega geta aðrir notendur haft aðgang að og notað efni þitt sem hluta af, eða í sambandi við þjónustuna. Við erum ekki skuldbundin til að fjarlægja efni þitt þegar því hefur verið deilt opinberlega.
  • Þú munt aðeins nota efni annarra notenda innan Ancestry-þjónustunnar og í samræmi við þessa skilmála og aðrar stefnur sem þeir vísa í; 
  • Ancestry áskilur sér réttindi til að fylgjast með efni þínu og athuga brot á þessum skilmálum, þ.m.t. samfélagsreglur og að fjarlægja eða ógilda aðgang þinn að efninu að eigin ákvörðun; og
  • Ancestry áskilur sér réttinn til að loka fyrir reikning þess notanda sem gerist sekur um alvarleg eða endurtekin brot eða lögbrot, að eigin geðþótta Ancestry.

3.4  Tilkynning um brot á þessum skilmálum. Við virðum höfundarrétt annarra. Ef þú hefur áhyggjur af því að efni brjóti á samfélagsreglum, brjóti á réttindum þínum, innihaldi ólöglegt efni, eða brjóti á þessum skilmálum skaltu hafa samband við okkur. Fyrir kvartanir sem snúa að brotum á höfundarrétti eða til að senda tilkynningar um brot á höfundarrétti og beiðni um að taka efni niður, þ.m.t. þær sem snúa að U.S. Digital Millennium Copyright Act skaltu smella hér.

4. Endurnýjun og uppsögn á þjónustu Ancestry

Kaup þín á og áskrift(um) að einhverri af Þjónustuleiðum okkar eru háð Endurnýjunar- og uppsagnarskilmálum.

5. Lokun eða tímabundin lokun reiknings þíns

Við áskiljum okkur rétt til að takmarka, loka varanlega eða tímabundið á aðgang þinn að þjónustunni án endurgreiðslu ef þú brýtur gegn þeim eða samfélagsreglunum. Í slíkum tilvikum átt þú ekki rétt á að fá áskriftargjöld eða kaupverð DNA-prófunarsettsins endurgreidd.

6. Engin ábyrgð eða trygging

Nema þar sem það er sérstaklega tekið fram í þessum skilmálum, þá veitum við þér þjónustuna og Ancestry-efni „eins og það kemur fyrir“, þ.e.a.s. án allrar ábyrgðar. Að því marki sem lög leyfa, höfnum við allri ábyrgð, hvort sem er beinni eða óbeinni, þar með talið óbeinum ábyrgðum um söluhæfi vörunnar og hæfi vörunnar til notkunar í tilteknum tilgangi eða að ekki sé brotið gegn höfundarrétti. Við gefum engin loforð með tilliti til (a) Ancestry-efnis, (b) efnis frá notanda, (c) sérstakrar virkni þjónustunnar, (d) gæða, nákvæmni, áreiðanleika eða framboðs á efni eða þjónustu Ancestry, (e) að þjónustu séu lausar við vírusa og aðra skaðlega hluti.

Við erum ávalt að breyta og bæta þjónustu okkar. Ancestry getur bætt við eða fjarlægt virkni eða notendamöguleika þjónustu okkar eða stöðvað þjónustuna tímabundið eða til framtíðar.

7. Takmörkuð ábyrgð Ancestry

Með því að nota þjónustuna samþykkir þú að ábyrgð Ancestry er takmörkuð að því leiti sem slíkt er heimilað í lögum. Við munum ekki bera ábyrgð á neinu óviljandi tjóni, raunverulegu, tilfallandi eða afleiddu tjóni, eða tjóni eða kröfum af neinu tagi. Ef þú býrð í lögsögu sem heimilar okkur ekki að takmarka ábyrgð okkar á altækan hátt kunna sumar af þessum takmörkunum ekki að gilda um þig.

Ef þú ert óánægður með einhverja af þjónustu okkar eða með einhverja staðhæfingu í þessum skilmálum, þá er eina úrræðið þitt að hætta að nota þjónustuna og, ef þú ert að nota áskriftarþjónustu okkar, að stöðva áskriftina eins og lýst er hér. Heildarábyrgð okkar í hverju því sem tengist þjónustunni eða þessum skilmálum takmarkast við heildarupphæðina sem þú greiddir okkur á 12 mánaða tímabilinu sem leiddi að tilvikinu sem leiddi til ábyrgðarkröfu. Þessi takmörkun ábyrgðar gildir að fullu um íbúa í New Jersey.

8. Þín trygging

Þú samþykkir að þú munir gera Ancestry, hlutdeildarfélög þess og dótturfélög viðkomandi fulltrúa, stjórnarmanna, starfsmanna, umboðsmanna, eftirmanna og framseljenda („Ancestry-aðilar”) óskaðabótaskyld með tilliti til allra krafa, skaðabóta eða annars kostnaðar (þ.m.t. þóknun lögmanns) sem stafar af notkun þinni á þjónustu okkar og (a) brot þitt á þessum skilmálum eða öðrum skjölum sem teljast innifalin hér vegna tilvísunar; (b) brot þitt á réttindum annars aðila; eða (c) hvers kyns kröfu sem tengist efni þínu, þar með taldar kröfur þess eðlis að þitt efni þitt hafi valdið öðrum aðila skaða. Þessi skaðleysisskylda heldur gildi sínu eftir að þú hættir að nota þjónustuna. Að auki leysir þú Ancestry-aðila undan öllum kröfum, aðgerðum eða málshöfðunum í tengslum við efni  þitt, þar með talin hvers kyns ábyrgð sem tengist notkun okkar eða skortur á notkun á efni þínu, kröfur vegna ærumeiðinga, brot á friðhelgi einkalífsins, óheimil notkun á þinni persónu, tilfinningalega vanlíðan eða fjárhagslegt tjón.

9. Þjónusta sem önnur fyrirtæki bjóða upp á

Þjónustan getur innihaldið slóðir á vefsíður sem þriðju aðilar reka, en slíkt skal ekki túlkað sem stuðningur, samþykki eða ábyrgð á slíkum síðum. Ancestry ábyrgist ekki eða tryggir vefsíður þriðju aðila, efni þeirra, vörur eða þjónustu. Vinsamlegast kynntu þér vandlega notkunarskilmálana og persónuverndaryfirlýsingar fyrir vefsíður þriðju aðila sem geta verið ólíkar Ancestry.

10. Úrlausn ágreiningsmála, gerðardómur og undanþága frá hópmálsóknum

VINSAMLEGAST LESIÐ ÞENNAN HLUTA VANDLEGA. ÞETTA HEFUR ÁHRIF Á LAGALEGAN RÉTT ÞINN ÁSAMT RÉTTI ÞÍNUM TIL HÖFÐA LÖGSÓKN FYRIR RÉTTI.

Við kappkostum að halda viðskiptavinum okkar ánægðum. Ef ágreiningur kemur upp á milli þín og Ancestry er markmið okkar að bjóða upp á hagkvæma leið til að leysa ágreininginn með skjótum hætti. Ef upp koma einhverjar áhyggjur eða ágreiningur í tengslum við þjónustuna, samþykkir þú að reyna fyrst að leysa ágreiningsmálið með óformlegum hætti með því að hafa samband við okkur.

10.1 Viðskiptavinir í Bandaríkjunum. Þú og Ancestry sættist á að þessir skilmálar hafi áhrif á milliríkjaviðskipti og að túlkun og framfylgd þessara gerðardómsákvæða heyri undir alríkisgerðardómslögin (Federal Arbitration Act).

Eins og það er notað í þessum samningi er hugtakinu „ágreiningur“ ætlað að vera eins víðtækt og lagalega leyfilegt og felur í sér, en takmarkast ekki við, allar deilur milli þín og annarra aðila sem þú hefur haft samskipti við fyrir hönd Ancestry annars vegar, og Ancestry, þar á meðal foreldra, dótturfélaga, forvera, arftaka, framseljenda eða hlutdeildarfélaga, hins vegar, sem stafa af eða tengjast á einhvern hátt skilmálunum, þessum gerðardómssamningi eða samskiptum þínum eða sambandi við Ancestry. Ennfremur, ef þú hefur eða munt nota þjónustu Ancestry eða á annan hátt í samskiptum við Ancestry fyrir hönd ólögráða eða annars einstaklings sem þú ert foreldri eða forráðamaður fyrir, samþykkir þú, fyrir hönd ólögráða barnsins eða annars einstaklings, að ágreiningur sem rís vegna eða í tengslum við slíka notkun á þjónustu Ancestry eða önnur samskipti við Ancestry skulu vera háð gerðardómi, eins og sett er fram hér, og háð öðrum samningum sem settir eru fram hér (þar á meðal undanþága frá hópmálssóknum); þú staðfestir ennfremur að þú hafir heimild til að gera slíkan samning fyrir hönd ólögráða barnsins eða annarra. Allur ágreiningur milli okkar verður leystur með endanlegum og bindandi gerðardómi í samræmi við skilmála þessa samnings, með eftirfarandi þremur undantekningum:

  • Sérhver aðili að þessum samningi skal hafa möguleika á að leysa hvers kyns ágreining, ef hann uppfyllir skilyrði, fyrir smámáladómstólnum sem hefur lögsögu yfir búsetustað þínum. Ef einhver ágreiningur felur í sér kröfur um bæði (1) skaðabætur eða greiðsluaðlögun og (2) sanngjarnan eða lögbannsúrlausn, að því marki sem smámáladómstóllinn með lögsögu mun ekki leysa úr kröfum um sanngjarnan eða lögbannsúrlausn, skal hver aðili eiga kost á að leysa úr kröfum um peningalegan greiðsluaðlögun eða skaðabætur fyrir smámáladómstóli, og hvers kyns kröfu um sanngirni eða lögbann skal leyst úr gerðardómi samkvæmt samningi þessum. Ef kröfurnar í einhverri beiðni eða kröfu um gerðardóm hefðu getað borist fyrir smámáladómstóli, þá getur hver aðili valið að fá kröfurnar teknar fyrir fyrir smámáladómstóli frekar en í gerðardómi, hvenær sem er áður en gerðarmaðurinn er skipaður, með því að tilkynna hinn aðilinn (eða aðilarnir) að eigin vali skriflega. Ef þetta ákvæði eða takmörkun á að höfða mál fyrir smámáladómstóli reynist ógilt, skal þetta ákvæði vera aðskiljanlegt og fer málið fyrir gerðardóm; á engan hátt mun þetta ákvæði leyfa að mál sé höfðað á flokks-, fulltrúa- eða samstæðugrundvelli.
  • Hver aðili getur aðeins höfðað mál fyrir dómstólum í Utah-ríki vegna kröfu um einkaleyfi eða brot á höfundarrétti. Í þessu tilviki afsala báðir aðilar sér rétti á að leggja mál fyrir kviðdóm.
  • Ef það uppfyllir skilyrði, getur þú lagt kröfu til viðkomandi alríkisstofnunar, ríkisstofnunar eða staðbundinnar stofnunar sem gæti leitað lausnar í máli þínu gegn okkur fyrir þína hönd.

Ef þú ert áskriftarhafi og þú stöðvar áskrift vegna brots okkar eftir að hafa veitt okkur 30 daga frest til að bæta úr málinu og okkur tókst ekki að bæta úr málinu á þeim tíma, munum við endurgreiða þér öll fyrirframgreidd gjöld hlutfallslega.

10.1.1 Gerðardómsreglur. Þessi gerðardómssamningur lýtur Federal Arbitration Act (9 U.S.C. § 1 et seq.) lögunum. Fyrirtækið JAMS mun hafa umsjón með gerðardómi í samræmi við einfaldaðar gerðardómsreglur JAMS (Streamlined Arbitration Procedure Rules) fyrir þær kröfur sem ekki eru hærri en $250.000 og heildargerðardómsreglur JAMS fyrir kröfur sem eru hærri en $250.000 samræmi við það sem gildir þegar í gildi á þeim tíma þegar málið er sett í gerð, að undanskildum reglum eða verklagi sem eiga við eða heimila hópmálsóknir. Þar sem engar upplýstar kröfur eða gagnkröfur fara yfir $25.000 (að undanskildum kröfum um þóknun lögfræðinga) skal ágreiningurinn leystur með því að leggja fram skjöl eingöngu/skrifborðsgerðardómur nema gerðarmaðurinn finni góða ástæðu fyrir skýrslutöku í beinni. Hvor aðili um sig getur lagt fram mótvægiskröfur í gerðardómi, þar með talið kröfu um frávísun og/eða kröfu um yfirlitsdóm, og gerðarmaðurinn mun beita þeim stöðlum sem gilda um slíkar tillögur samkvæmt alríkisreglum um einkamálaréttarfar. Gerðardómsmaður, en ekki alríkisdómstólar, ríkisdómstólar eða staðbundnir dómstólar eða stofnanir, skal einn hafa vald til að leysa úr þeim ágreiningsmálum sem koma til út af eða tengjast túlkun, beitingu, framfylgdarhæfi eða uppsetningu þessara skilmála eða persónuverndaryfirlýsingar, þar með talið við hvers kyns kröfu um að allir eða einhver hluti þessara skilmála eða persónuverndaryfirlýsingar séu dæmir ógildir eða ógildanlegir, hvort sem krafa er háð gerðardómi eða spurningu um undanþágu málaferla (waiver by litigation conduct). Gerðardómsmaður skal hafa vald til að veita hvaða úrlausn sem býðst dómstólum samkvæmt lögum eða sanngirnisreglu. Úrskurður gerðardómsmanns skal vera skriflegur og bindandi fyrir aðila og má fella úrskurð sem dóm fyrir dómstóli í hvaða þar til bæru lögsagnarumdæmi.

Ef aðili leitar gerðardómar samkvæmt þessum samningi verður aðilinn sem leitar gerðardómar fyrst að tilkynna hinum aðilanum í málaferlinu skriflega um slíkt í með að minnsta kosta 60 daga fyrirvara áður en hann hefur mál.  Tilkynningar til Ancestry skal senda til Ancestry á Ancestry Legal Department, 1300 W. Traverse Parkway, Lehi, UT 84043.  Tilkynningar til þín verða sendar á samskiptaupplýsingarnar sem þú hefur skráð á Ancestry, ef slíkar upplýsingar eru fáanlegar og uppfærðar, með persónulegum samskiptum. Tilkynningarnar sem aðilarnir senda skulu innihalda nægar upplýsingar til að heimila mótaðilanum að auðkenna reikning (þ.m.t. nafn og netfang sem notað er fyrir reikninginn) sem og að meta og reyna að leysa úr kröfunni, þ.m.t. lýsingu á kröfunni, sönnunargögn sem styðja við kröfuna, hvaða skaðabóta er krafist og hvaða úrbóta er krafist.  Krafan um tilkynninguna er ætluð til að gera aðilum kleift að leysa málið með tilboða sem byggir á staðreyndum tilfellisins ef aðilinn ákveður að gera það.  Hvorugur aðili getur hafið gerðardómsmál án þess að veita þessar upplýsingar fyrst.  Að því leyti sem deilumál kemur upp varðandi það hvort tilkynningin hafi verið fullnægjandi, verður að útkljá það mál fyrir rétti með lögsögu í málinu áður en mál er háð fyrir gerðardómstóli.  Ef að aðili veitir þessar upplýsingar og deila er ekki leyst innan 60 daga er báðum aðilum heimilt að sækja um gerðardóm.

Til að setja mál í gerð verður þú að gera eftirfarandi: (a) gera skriflega kröfu um gerðardóm sem inniheldur lýsingu á kröfunni og þeirri skaðabótaupphæð sem þú leitast við að endurheimta (þú getur fundið dæmi um kröfu um gerðardóm á www.jamsadr.com); (b) senda þrjú eintök af kröfu um gerðardóm, auk viðeigandi skráningargjalds, til JAMS, Two Embarcadero Center, Suite 1500, San Francisco, California 94111; og (c) senda eitt eintak af kröfunni um gerðardóm til Ancestry hjá Ancestry Legal Department, 1300 W Traverse Parkway, Lehi, UT 84043. Gerðardómur getur farið fram í þeirri sýslu þar sem þú ert búsett(ur) þegar umsókn er lögð fram. Þú og Ancestry samþykkja ennfremur að lúta persónulegri lögsögu hvers alríkis- eða ríkisdómstóls í San Francisco sýslu í Kaliforníu til að knýja fram gerðardóm, fresta málsmeðferð á meðan gerðardóms er beðið, eða til að staðfesta, breyta, víkja eða kveða upp úrskurð um bætur sem gerðardómsmaður úrskurðar.

Aðilarnir skulu í sameiningu velja gerðardómsmann. Ef aðilarnir geta ekki valið gerðardómsmann í sameiningu skal hann valinn á eftirfarandi hátt: JAMS mun veita sérhverjum aðila lista yfir níu (9) gerðardómsmenn sem er dreginn af lista þeirra yfir gerðardómsmenn. Sérhverjum aðila eru veittir tíu (10) almanaksdagar til að strika yfir þau nöfn af listanum sem þeim finnst óásættanleg. Ef aðeins eitt sameiginlegt nafn er eftir á listum aðilanna skal sá maður verða valinn gerðardómsmaður. Ef fleiri en eitt sameiginlegt nafn er á lista aðilanna skulu aðilarnir skiptast á að stroka út nöfn á lista yfir sameiginleg nöfn á símafundi undir stjórn JAMS þar sem kröfuhafinn byrjar, þangað til aðeins eitt nafn er eftir. Ef ekkert sameiginlegt nafn er eftur á lista aðilanna skulu aðilarnir skiptast á að stroka út nöfn á lista yfir sameiginleg nöfn á símafundi undir stjórn JAMS þar sem kröfuhafinn byrjar, þangað til aðeins eitt nafn er eftir. Sá einstaklingur verður valinn gerðardómsmaður. Ef valinn einstaklingur er óhæfur mun JAMS senda út annan lista yfir níu (9) gerðardómsmenn og endurtaka ferlið.

10.1.2Gjöld. Þú verður að greiða 250 $—eða aðra upphæð sem farið er fram á samkvæmt gildandi JAMS reglum—til að hefja mál í gerð gegn okkur. Ef gerðardómsmaður telur að gerðardómurinn sé ekki ómerkur mun Ancestry greiða öll önnur gjöld til JAMS samkvæmt útgefnum reikningum, þar á meðal skráningargjöld og gerðardóms- og málflutningskostnað. Þú berð ábyrgð á að greiða þóknun til eigin lögmanns nema gerðardómsreglur og/eða gildandi lög kveði á um annað.

10.1.3 Engar hópmálsóknir. Þetta ákvæði skal kallast „Undanþágu frá hópmálsóknum.“ Aðilarnir samþykkja að sérhver aðili megi einungis leysa deiluefni við hinn aðilann á einstaklingsgrundvelli og geti ekki sett fram kröfu sem stefnandi eða hópmeðlimur í flokks-, samstæðu- eða fyrirsvarsaðgerðum. Þetta ákvæði gildir bæði um deilur sem eru leystar með gerðardómi og deilur sem eru leystar fyrir dómi, að því leiti sem þær geta komið upp. Ef dómstóll eða gerðardómur kemst að þeirri niðurstöðu að þessi undanþágu sé ógild eða af einhverjum ástæðum óaðfararhæf eða að gerðardómur getir farið fram á hópmálaferli, skulu gerðardóms ákvæði sem koma fram hér að ofan vera dæmd dauð og ómerk í heild sinni og telja skal að aðilarnir hafi ekki samþykkt að skjóta deilumáli sínu fyrir gerðardóm. Í slíkum tilvikum verður ágreiningurinn að fara fyrir alríkis- eða ríkisdómstól í lögsagnarumdæmi Utah-ríki - ekki fyrir gerðardóm.

10.1.4 Margar kröfur. Ef 25 eða fleiri einstaklingar gefa út tilkynningu um ágreining við Ancestry sem verður til vegna svipaðra krafna og lögmennirnir sem koma fram með slíkar kröfur eru þeir sömu eða starfa saman fyrir þessa einstaklinga að því leiti að kröfurnar fari fyrir gerðardóm skulu þær vera teknar saman í einu máli. Lögmenn Ancestry og aðilanna skulu velja fimm mál hver sem verða tekin fyrir sem fyrirmyndarmál. Eftirstandandi mál skulu ekki tekin til gerðar fyrr en fyrstu tíu hafa verið leyst. Ef aðilanir geta ekki leyst eftirstandandi mál eftir að forystumálin hafa verið tekin fyrir skal sérhver aðili velja önnur fimm mál sem verða tekin til gerðar sem önnur fyrirmyndarmál. Þetta ferli skal endurtaka þangað til aðilanir hafa leyst allar kröfurnar annaðhvort í gegnum samninga að gerðardóm. Réttur með viðeigandi lögsögu skal hafa vald til að tryggja að farið sé eftir þessu ákvæði og ef nauðsynlegt er að taka saman gerðarmálin gegn Ancestry og setja þau í gerð.

Útkoma gerðardóms mun einungis gilda fyrir það sérstaka mál. Ekki er hægt að nota hana í öðru máli nema til að tryggja að fullnustu hennar sjálfrar.

10.1.5 Að skilja á milli gildra og ógildra greina. Í tilfelli þar sem ákvæði þessa gerðardómssamnings er dæmt ógilt, óaðfararhæft, dautt og ógilt að hluta eða öllu leiti skal slíkur dómur ekki hafa áhrif á það sem eftir stendur af gerðardómssamningnum nema að því leiti sem kemur fram í „undanþágu frá hópmálssókn“. Öll eftirstandandi ákvæði skulu halda gildi sínu.

10.1.6 Breytingar á þessum hluta. Ancestry mun veita þrjátíu (30) daga fyrirvara um allar breytingar sem hafa áhrif á efni þessa hluta með því að senda tilkynningu um breytingar á skilmálum þjónustunnar, senda þér skilaboð eða láta þig vita með öðrum hætti þegar þú ert skráð(ur) inn á reikninginn þinn. Breytingar munu taka gildi þrjátíu (30) dögum eftir að þær eru birtar í gegnum þjónustuna okkar eða sendar til þín.

Breytingar á þessum hluta eiga að öðru leyti aðeins við framvirkt um kröfur sem myndast eftir þrítugasta (30.) dag. Ef dómstóll eða gerðardómsmaður ákveður að þessi undirkafli um "Breytingar á þessum hluta" sé ekki aðfararhæfur eða gildur, þá skal aðskilja þennan undirkafla frá hlutanum sem ber yfirskriftina „Úrlausn ágreiningsmála, gerðardómur og undanþága frá hópmálsóknum“ og skal dómstóllinn eða gerðardómsmaðurinn beita fyrsta hlutanum um gerðardóm og undanþágu frá hópmálsóknum sem til var þegar að þú byrjaðir að nota þjónustuna.

10.1.7 Gilditími. Þessi hluti um úrlausn ágreiningsmála, gerðardóm og undanþágu frá hópmálsóknum mun gilda eftir lokun á reikningi þínum eða þjónustu.

10.2 Viðskiptavinir utan Bandaríkjanna. Ef þú ert viðskiptavinur sem er ekki neytandi og staðsettur í Evrópusambandinu eða annars staðar utan Bandaríkjanna samþykkir þú að írskir dómstólar skulu hafa einkalögsögu í öllum deilumálum (samningsbundnum og ósamningsbundnum) sem snúa að þessum samningi.

10.2.1 Neytendur í Evrópusambandinu. Ef þú ert neytandi innan Evrópusambandsins muntu njóta góðs af öllum skylduákvæðum laga þess lands þar sem þú ert búsett(ur) og ekkert í þessum samningi mun hafa áhrif á rétt þinn sem neytandi til að njóta góðs af skylduákvæðum staðbundina laga. Þú hefur rétt á að höfða hvers kyns dómsmál sem tengjast þessum samningi fyrir þar til bærum dómstóli á búsetustað þínum eða þar til bærum dómstóli á starfsstöð Ancestry á Írlandi. Ef Ancestry leitast við að framfylgja einhverjum af réttindum sínum gegn þér sem neytanda, getum við aðeins gert það fyrir dómstólum í lögsögunni þar sem þú ert búsettur. Með fyrirvara um framangreint mun ekkert í þessu ákvæði skal takmarka rétt Ancestry til að höfða fullnustumál í öðru lögsagnarumdæmi eða til að leita tímabundinna úrræða, verndarúrræða eða bráðabirgðaúrræða fyrir dómstólum í öðru lögsagnarumdæmi.

Upplýsingar samkvæmt reglugerð 524/2013: Ef þú ert neytandi í Evrópusambandinu tryggir framkvæmdastjórn Evrópusambandsins þér rétt á að vísa deilu til vettvangs ESB fyrir lausn deilumála á netinu (ODR), sem er aðgengilegur á http://ec.europa.eu/consumers/odr/.

10.3 Gildandi lög. Ef þú nálgast þjónustuna á vefsíðum í Bandaríkjunum, gilda lög Utah-ríkis og að því marki sem viðeigandi getur talist, lög Bandaríkjanna, og þessir skilmálar og notkun þjónustunnar falla undir þau lög. Þú samþykkir að allar kröfur sem ekki eru háðar gerðardómi og eru settar fram innan Bandaríkjanna falla undir lögsögu dómstóla Utah-ríkis. Með fyrirvara um ákvæði 10.2.1, ef þú nálgast þjónustu okkar á vefsíðum utan Bandaríkjanna, falla þessir skilmálar undir írska löggjöf.

11. Ýmislegt

11.1 Ancestry fyrirtæki. Þú ert að ganga að þessum skilmálum með tilteknum Ancestry aðila eftir því hvaða þjónustu þú ert að nota og hvar þú ert staðsettur. Sjá lista yfir Ancestry aðila hér að neðan eftir þjónustu og landfræðilegri legu. Allar tilvísanir til „Ancestry“, „okkur“, „við“ eða „okkar“ í þessum skilmálum vísa til viðkomandi Ancestry aðila á þeim lista. Við áskiljum okkur réttindi til að breyta Ancestry aðilanum sem er aðili þessa samnings á hvaða tíma sem er.

11.2 Breytingar. Við getum breytt þessum skilmálum hvenær sem er og samþykkjum að tilkynna þér um allar efnislegar breytingar með því að senda upplýsingar í gegnum þjónustuna eða senda þér tölvupóst. Efnislegar breytingar taka gildi þrjátíu dögum eftir að þær eru birtar, nema breytingar sem snúa að nýjum þjónustum eða lagalegum kröfum, sem taka strax gildi. Áframhaldandi notkun þín á þjónustunni þýðir að þú samþykkir breytta skilmála. Ef þú samþykkir ekki breytingarnar ættir þú að hætta að nota þjónustuna og, ef við á, segja upp áskriftinni þinni.

11.3 Heildarsamningur. Þessir skilmálar, ásamt öðrum skjölum sem eru innifalin hér með tilvísun, setja fram samningsheild á milli þín og Ancestry varðandi notkun þína á þjónustunni og koma í stað allra fyrri samninga.

11.4 Flutningur réttinda og skyldna. Við áskiljum okkur rétt til að framselja eða flytja réttindi okkar og skyldur samkvæmt þessum samningi. Ef Ancestry eða fyrirtæki þess er tekið yfir eða flutt undir annan aðila (að öllu leyti eða að hluta til og þ.m.t. gjaldþrotaskipti eða álíka ferli), samþykkir þú að Ancestry hafi rétt á að deila persónuupplýsingum þínum og efni þínu með þeim aðila. Þessir skilmálar munu gilda áfram um þjónustuna þangað til þú færð tilkynningu um annað. Þér óheimilt án skriflegs samþykkis Ancestry, framselja eða flytja réttindi þín og skyldur samkvæmt þessum samningi. Það eru engir þriðju aðila hagsmunaaðilar að þessum ákvæðum.

11.5 Að skilja á milli gildra og ógildra greina. Nema það sem sérstaklega er kveðið á um hér, mun óaðfararhæfi einhvers hluta eða ákvæðis í þessum skilmálum ekki hafa áhrif á aðfararhæfi þeirra skilmála sem eftir sitja.

11.6 Engar undanþágur. Ef við nýtum ekki réttindi okkar samkvæmt ákvæðum þessara skilmála þá teljumst við ekki vera að afsala okkur réttindum okkar samkvæmt því ákvæði og við áskiljum okkur öll þau réttindi sem þér eru ekki sérstaklega veitt samkvæmt þessum samningi.

11.7 Ósjálfráða einstaklingar þrettán og yngri. Ancestry leitar ekki vísvitandi að eða safnar persónuupplýsingum beint frá einstaklingum undir 13 ára aldri og mun gera viðskiptalega sanngjarnar tilraunir til að eyða slíkum gögnum úr kerfinu okkar.

11.8 Lög um sanngjarna meðferð fjárhagsupplýsinga (Fair Credit Reporting Act). Ancestry er ekki fyrirtæki sem gefur út neytendaskýrslur samkvæmt skilgreiningu í lögum um sanngjarna meðferð fjárhagsupplýsinga (Fair Credit Reporting Act, FCRA), og þeim upplýsingum sem þú hefur aðgang að í gegnum þjónustuna okkar hefur ekki verið safnað í heild eða að hluta í þeim tilgangi að fylla út neytendaskýrslur, samkvæmt skilgreiningu í FCRA. ÞÚ MÁTT EKKI NOTA ÞJÓNUSTUNA SEM ÞÁTT Í AÐ (1) STAÐFESTA HÆFI EINSTAKLINGS TIL LÁNATÖKU EÐA TRYGGINGA EÐA META ÁHÆTTU Í TENGSLUM VIÐ NÚVERANDI LÁNASKULDBINDINGAR, (2) META EINSTAKLING MEÐ TILLITI TIL STARFSHÆFNI, STÖÐUHÆKKUNAR, ENDURÚTHLUTUNAR EÐA VIÐHALDA STÖÐU (ÁSAMT EN TAKMARKAST EKKI VIÐ RÁÐNINGU EINSTAKLINGA Í HEIMILISSTÖRF, SVO SEM BARNFÓSTUR, HREINGERNINGAFÓLK, BARNAPÍUR, VERKTAKAR OG AÐRIR AÐILAR), EÐA (3) ÖNNUR PERSÓNULEG VIÐSKIPTI VIÐ ANNAN AÐILA (ÁSAMT EN TAKMARKAST EKKI VIÐ ÚTLEIGU Á ÍBÚÐARHÚSNÆÐI).

11.9 Reglur um óumbeðin hugmyndaskil. Ancestry samþykkir ekki, skoðar eða tekur ekki tillit til óumbeðnar hugmyndir eða efni (þar á meðal, nýjar auglýsingaherferðir, nýjar kynningar, nýjar vörur eða tækni, ferla, efni, markaðsáætlanir eða ný vöruheiti) önnur en þau sem Ancestry hefur óskað sérstaklega eftir. Vinsamlegast ekki senda óumbeðnar hugmyndir eða efni til Ancestry eða aðila hjá Ancestry. Ef þú sendir þær, skilur þú og samþykkir að Ancestry mun ekki líta á óumbeðnar hugmyndir og efni sem þú sendir inn sem trúnaðarmál eða sem varið af eignarrétti og Ancestry mun eiga rétt á ótakmarkaðri notkun á þessum hugmyndum og efnum, án skuldbindinga, vegna samninga eða annars við þig og án greiðslu til þín.

 

Þessir skilmálar og skilyrði voru tekin saman úr aðskildum fyrri útgáfum. Fyrir fyrri útgáfur af skilmálum sem gilda um þjónustuna skaltu smella hér.